Síðan í vor hef ég gengið um með hugmynd í maganum að halda gervigreindarnámskeið, bara fyrir konur og kvár. Ástæðan fyrir því er að undanfarna mánuði hef ég tekið eftir því að konur eru ekki að kynna sér gervigreind jafn mikið og karlar. Konur eru oft með marga bolta á lofti, bera þungann af þriðju vaktinni á heimilum svo dæmi sé nefnt og þær virðast ekki gefa sér tíma til að setjast niður og læra á þessa nýju tækni.

Gellur & gervigreind

Afleiðingin er sú að þetta vex þeim í augum. Þær vita að þær ættu að vera löngu byrjaðar að „nota gervigreind” en þær vita ekki í hvað eða hvar þær eiga að byrja. Ég hef orðið vör við vaxandi gervigreindarkvíða í konum í kringum mig því þeim finnst þær vera búnar að missa af lestinni.

Ég hef líka talað við konur sem hafa sótt viðburði af ólíkum toga til að kynna sér gervigreind betur. Einn slíkur viðburður bauð upp á umræður í lokin og þar tóku karlarnir algjörlega yfir með löngum frásögnum og háværari röddum og það heyrðist ekki í einni konu í þeim umræðum.

Vinkona mín hún Rakel Björt skrifaði svo frábæra grein í vor og orð hennar hafa setið í mér síðan ég las þau:

Ef við leyfum okkur að detta aftur úr núna, á meðan öllum er boðið upp að læra þessar nýju leikreglur, þá erum við að tapa jarðvegi sem við höfum barist fyrir í áratugi.

Sem konur og kvár megum við ekki leyfa okkur að detta aftur úr. Þessar tækniframfarir eru að eiga sér stað akkurat núna og við eigum sama tækifæri og karlmenn til að kynna okkur þessa nýjung.

Ég er búin að fá samstarfskonu mína og góðvinkonu Önnu Margréti Gunnarsdóttur með mér í lið til að bjóða upp á námskeið fyrir konur og kvár. Anna Margrét býr yfir einstökum hæfileikum til að veita innblástur og lyfta upp konum kringum sig og hún ætlar að halda fyrirlestur um hvernig kvenlegir styrkleikar geta nýst í þessari gervigreindarbyltingu.

Okkur langar að bjóða upp á hvetjandi umhverfi sem býr til rými fyrir konur og kvár til að læra og spyrja spurninga. Okkur langar að bjóða upp á hvetjandi fyrirlestur sérsniðinn að konum, námskeið á mannamáli sem lyftir hulunni af þessari víðamiklu tækni og sem býður upp á „hands-on” kennslu.

Markmiðið okkar verður að valdefla þátttakendur, að þau labbi út með lausn sem þau smíðuðu sjálf á námskeiðinu og með sniðmát og skýra sýn að vopni til að taka notkun sína lengra eftir námskeiðið.

Það eru fullt af gervigreindarnámskeiðum í boði þarna úti. Okkur langar að bjóða upp á kvöldnámskeið þar sem vinkonuhópar eða einstaklingar geta gert sér glaðan dag með drykk við hönd og lært eitthvað nýtt. Við vonumst til að geta veitt innblástur, komið líflegum umræðum af stað og boðið upp á ljúfa kvöldstund.

Ef þú skilgreinir þig sem kona eða kvár og þetta hljómar sem eitthvað sem þú hefur áhuga á, þá er skráning hafin hér. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér.